IFS greining spáir því að rekstrartekjur Icelandair Group aukist um 12% á milli ára og verði 286 milljónir Bandaríkjadala, sem jafngildir tæpum 33 milljörðum króna, á öðrum fjórðungi ársins. Þá telur IFS að EBITDA félagsins, þ.e. rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, verði um 34 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 3,9 milljarða króna, á ársfjórðungnum.
Í afkomuspá sinni bendir IFS þó á að sú stærð sé háð nokkurri óvissu vegna verkfalla nokkurra starfsstétta félagsins.