Fríar sætaferðir auka flæði fólks í verslunum

Verslunarmiðstöðvarnar bjóða ferðamönnum far úr bænum.
Verslunarmiðstöðvarnar bjóða ferðamönnum far úr bænum. mbl.isStyrmir Kári

Líkt og undanfarin sumur býður Kringlan ferðamönnum upp á fríar sætaferðir til og frá miðbænum í sumar.

Þetta er fjórða árið í röð sem Kringlan býður upp á þessa þjónustu, en rúta fer frá Upplýsingamiðstöð ferðamanna við Aðalstræti 2 og stoppar við bílastæði Kringlunnar. Í fyrrasumar hóf Smáralind einnig að bjóða upp á þessa þjónustu og hefur hún einnig fest í sessi þar. Farnar eru nokkrar ferðir á dag.

Rekstraraðilar verslana í verslunarmiðstöðvunum tveimur virðast ánægðir með framtakið og segja það auka flæði fólks í húsinu, að því er fram kemur í Morgunlaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK