Icelandair skoðar skuldabréfaútgáfu

Icelandair skoðar útgáfu á skuldabréfum hér á landi.
Icelandair skoðar útgáfu á skuldabréfum hér á landi. mbl.is/Júlíus

Stjórn Icelandair Group hf. hefur ákveðið að skoða möguleika á skuldabréfaútgáfu félagsins á Íslandi. Með skuldabréfaútgáfunni er stefnt að því að auka fjölbreytni í fjármögnun félagsins og búa félagið undir fyrirhugaða fjárfestingu í nýjum flugvélum.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Seðlabanki Íslands hafi veitt félaginu heimild til þess að gefa út skuldabréf fyrir allt að EUR 60.000.000 og selja til innlendra fjárfesta fyrir íslenskar krónur. Eftir er að útfæra nákvæmlega skilmála skuldabréfanna.

Icelandair Group hefur náð samkomulagi við Íslandsbanka um að annast mögulega útgáfu og sölu skuldabréfanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK