Vísitala byggingarkostnaðar var 120,8 stig um miðjan ágústmánuð og hefur hækkað um 0,1% frá fyrri mánuði, samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Verð á innlendu efni hækkaði um 0,2% en aðrir undirliðir höfðu hverfandi áhrif.
Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 1,9%.