Hagnaður N1 nam 397 milljónum króna á fyrri helmingi ársins, en hann var 104 milljónir á fyrri helmingi síðasta árs.
Félagið skilaði 483 milljóna króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi, sem er mun betri afkoma en á sama fjórðungi í fyrra.
Fram kemur í afkomutilkynningunni að stjórn félagsins hafi á fundi sínum í gær ákveðið að boða til hluthafafundar um miðjan október, þar sem lagt verði til að hluthöfum verði greiddar 3.860 milljónir króna með 30% lækkun hlutafjár.