Fyrsti Domino's-pítsustaðurinn í Noregi var opnaður um síðustu helgi en hann er staðsettur í hverfinu Lören í miðri Osló, höfuðborg landsins. Hverfið var áður iðnaðarhverfi en hefur nýlega verið endurskipulagt sem íbúðarhverfi.
Fram kemur í fréttatilkynningu að fjárfestarnir að baki opnun staðarins ætli sér þrjú ár til þess að koma Domino's í sterka markaðsstöðu í Noregi. Nokkrir fleiri staðir séu þegar á teikniborðinu en gert sé ráð fyrir að þeir geti orðið allt að fimmtíu.