Eignir Kaupþings nema 788,8 milljörðum

Kaupþing banki.
Kaupþing banki. Ómar Óskarsson

Bókfært virði eigna Kaupþings jókst um 10,7 milljarða króna á fyrri helming ársins og nam 788,8 milljörðum króna í lok júní 2014. Hrein virðisbreyting eigna nam 36,5 milljörðum króna en neikvæð gengisáhrif vegna styrkingar krónunnar námu 12,9 milljörðum. Þá námu greiðslur inn á vörslureikning vegna umdeildra forgangskrafna 2,6 milljörðum króna. 

Þetta kemur fram í árshlutareikningi Kaupþings hf. sem slitastjórnin birti í dag.

Handbært fé Kaupþings stóð í 413,1 milljarði króna við lok tímabilsins og lækkaði um 5,4 milljarða eða um 1,3%. Lækkunin skýrist meðal annars af neikvæðum áhrifum vegna styrkingar krónunnar. Mælt í evrum jókst handbært fé um 40 milljónir eða um 1,5%. Heildareignir Kaupþings í erlendum myntum eru metnar á 626,2 milljarða króna en eignir í íslenskum krónum eru metnar á 162,6 milljarða.

Útistandandi kröfur lækka

Samþykktar kröfur í kröfuskrá námu 2.792,6 milljörðum króna og hafa þær lækkað um 10,9 milljarða á tímabilinu. Að meðtöldum ágreiningskröfum námu útistandandi kröfur á hendur Kaupþingi 2.856,7 milljörðum króna og hafa þær lækkað um 115,5 milljarða á tímabilinu. Ástæður þessarar lækkunar má að mestu leyti rekja til úrlausna ágreiningsmála.

Rekstrarkostnaður lækkar um 6,9%

Rekstrarkostnaður Kaupþings á fyrri helmingi ársins nam 2,7 milljörðum króna og lækkaði um 0,2 milljarða eða um 6,9% frá fyrra ári. Rekstrarkostnaður tímabilsins á ársgrundvelli, nam 0,3% af nafnvirði eigna sem voru 2.003 milljarðar króna í lok tímabilsins og 0,7% af bókfærðu virði eigna. Tæplega helmingur rekstrarkostnaðarins er vegna aðkeyptrar erlendrar sérfræðiráðgjafar. Þá námu greiðslur Kaupþings vegna virðisaukaskatts 140 milljónum króna, eða sem svarar til rúmlega 5% af heildarkostnaði

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK