iPhone 6 kominn til landsins

Nýju símarnir frá Apple. IPhone 5 er lengst til vinstri …
Nýju símarnir frá Apple. IPhone 5 er lengst til vinstri en svo kemur iPhone 6 og þá iPhone 6 plús. Mynd/AFP

Margir hafa beðið í röðum eftir iPhone 6, nýjustu viðbót Apple-fjölskyldunnar. Síminn er nú kominn til landsins í takmörkuðu magni og er það Nova sem er með símann til sölu í verslun sinni í Kringlunni. Apple hefur enn ekki gefið út opinberlega hvenær síminn fer í almenna sölu hér á landi.

Fyrstu löndin fengu símann í sölu í gær, 19. september og hefur Apple tilkynnt um að næstu lönd fái hann í sölu þann 26. september.  

Biðraðir mynduðust fyrir utan flestar Apple-verslanir í heiminum þegar salan fór í gang í gær og greinilega margir sem vilja næla sér í eintak. 

Biðröð fyrir utan verslun Apple í Sidney í Ástralíu.
Biðröð fyrir utan verslun Apple í Sidney í Ástralíu. Mynd/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK