Vísitala kaupmáttar launa hækkar

Kaupmáttur eykst.
Kaupmáttur eykst. mbl.is/Eggert

Launavísitala í ágúst 2014 er 487,4 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,3%. Vísitala kaupmáttar launa í ágúst 2014 er 118,2 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,9%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar segir einnig að í launavísitölu ágústmánaðar gæti áhrifa kjarasamnings ríkis og framhaldsskólakennara annars vegar og sveitarfélaga við grunnskólakennara hins vegar frá 2. ársfjórðungi 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK