Commerzbank, næst stærsti banki Þýskalands, er til rannsóknar í Bandaríkjunum vegna ásakanum um að bankinn hafi brotið gegn reglum um peningaþvætti. Þetta er fullyrt í frétt AFP og vísað í ónafngreinds heimildarmann sem þekki til málsins.
Fram kemur í fréttinni að rannsóknin hefjist á sama tíma og Commerzbank sé á lokametrunum að ná samningum vegna máls sem snúi að ásökunum um að bankinn hafi átt í viðskiptum við ríki sem Bandaríkin hafa lagt viðskiptabann á.
Peningaþvættismálið er höfðað af saksóknara á Manhattan í New York og snýr rannsóknir að slakri viðleitni Commerzbank til þess að koma í veg fyrir peningaþvætti í gegnum hann. bankinn hefur neitað að tjá sig um málið.