Miðasöluvefurinn Tix kominn í loftið

Sindri Már Finnbogason
Sindri Már Finnbogason

Miðasöluvefurinn Tix fór í loftið í dag en honum er ætlað að annast sölu miða á ýmsa viðburði á Íslandi, líkt og á tónleika og leikhússýningar. Á síðunni tix.is er þegar hafin miðasala á Sónar Reykjavík 2015 og á næstu vikum munu enn fleiri viðburðir bætast við.

Þróunarvinnunni er ekki lokið og er stefnt að því að innan skamms geti notendur skráð sig inn, valið sér sæti, átt uppáhaldssæti í hinum ýmsu sölum á landinu og margt fleira sem fram að þessu hefur ekki verið í boði í miðasölu hér á landi.

Stór hluti vinnunnar sem hefur átt sér stað í kringum síðuna felst í sjálfu miðasölukerfinu sem liggur á bakvið vefsíðuna. Það er hugsað til þess að stofna viðburði, taka út skýrslur, byggja sali, selja miða við inngang og margt fleira. Kerfið er einnig uppbyggt með þeim hætti að auðvelt er að styðjast við snertiskjá fyrir viðburði og jafnvel nota spjaldtölvur sem tengjast prentara eða posa í gegnum þráðlaust net.

Framkvæmdastjóri Tix og aðaleigandi er Sindri Már Finnbogason. Sindri var einn stofnenda miðasöluvefsins Miði.is en réði sig síðar til starfa fyrir Billetlugen, en það er stærsta miðasölufyrirtæki Danmerkur.

Sindri, sem er forritari, var lykilmaður í þróun bæði Miða.is og Billetlugen. Hann hefur á undanförnum árum sett upp miðasölukerfi fyrir viðskiptavini um alla Skandinavíu; svo sem Hróarskelduhátíðina, tónlistarhúsið í Árósum, Tívolí, Danmarks Radio, Stavanger tónlistarhús í Noregi, Norsku Óperuna, Gautaborgaróperuna og fleiri.

„Við förum hægt af stað og gerum það vel og vandlega. Vefurinn er enn í þróun en í nóvember munu fleiri viðburðir bætast við ásamt nýjungum á vefnum sjálfum. Okkar markmið er að gera miðasölu á Íslandi einfaldari, aðgengilegri og síðast enn ekki síst enn betri,“ er er haft eftir Sindra í til­kynn­ing­unni.

Frétt mbl.is: Nýr miðasöluvefur opnar í haust

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK