Síldarvinnslan kaupir Gullberg á Seyðisfirði

Verksmiðja Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað.
Verksmiðja Síldarvinnslunnar á Neskaupsstað. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Síldarvinnslan hf. hefur keypt öll hlutabréf í Gullbergi ehf. á Seyðisfirði sem gerir út togarann Gullver NS 12. Samhliða kaupum á togaranum keypti Síldarvinnslan húsnæði og búnað Brimbergs til fiskvinnslu á Seyðisfirði.

Áfram verður gert út frá Seyðisfirði og lögð áhersla á að tryggja áframhaldandi framleiðslustörf  tengd sjávarútvegi í byggðarlaginu. Fyrir rekur Síldarvinnslan  fiskimjölsverksmiðju á Seyðisfirði. 

Í frétt frá Síldarvinnslunni kemur fram að kaupin séu liður í að styðja við starfsemi Síldarvinnslunnar á Austurlandi. Með því að hafa útgerð og vinnslu á sömu hendi er traustari stoðum skotið undir heilsársstörf og atvinnulíf í byggðarlaginu.

Það hefur verið stefna Síldarvinnslunnar að auka við sig bolfiskheimildir og breikka rekstrargrundvöll félagsins, segir ennfremur í tilkynningunni. Megináhersla síðustu áratugi hefur verið á veiðar og vinnslu uppsjávartegunda. Kaupin á Gullbergi eru í takt við áherslu stjórnenda Síldarvinnslunnar að fjölga grunnstoðum í rekstri félagsins. 

Gullver NS 12 er 674 tonna skuttogari, tæplega 50 metra langur og smíðaður í Noregi árið 1983.Aflamark togarans á yfirstandandi fiskveiðiári, 2014-2015, nemur 2.855 þorskígildistonnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK