Vextir á evrusvæðinu óbreyttir

Mario Draghi, formaður bankaráðs Evrópska seðlabankans.
Mario Draghi, formaður bankaráðs Evrópska seðlabankans. AFP

Formaður bankaráðs Evrópska seðlabankans, Mario Draghi, hvatti í dag ríkisstjórnir evrusvæðisins til þess að koma efnahagsmálum ríkja sinna í lag með það að markmiði að örva hagvöxt innan svæðisins.

Draghi sagði á blaðamannafundi í dag, þar sem tilkynnt var að vextir Evrópska seðlabankans yrðu óbreyttir, að peningamálastefna bankans væri miðuð við það að viðhalda verðstöðugleika til skamms tíma og styðja samtímis við efnahagslífið í evruríkjunum. Stýrivextir bankans eru nú 0,05%.

„En til þess að geta stuðlað að auknum fjárfestingum, meiri atvinnu og mögulegum hagvexti þurfa önnur stjórnsýslustig að leggja sitt að mörkum. Einkum og sér í lagi setning laga og innleiðing á umbótum sem augljóst er að leggja þarf áherslu á í nokkrum ríkjum,“ sagði hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK