Ræða sölu HB Granda á eignarhlut í Stofnfiski

Eignarhlutur HB Granda í Stofnfiski nemur 64,94% af hlutafé félagsins.
Eignarhlutur HB Granda í Stofnfiski nemur 64,94% af hlutafé félagsins. mbl.is/Þórður

HB Grandi hefur ákveðið að ganga til viðræðna við ákveðinn fjárfesti um hugsanlega sölu á eignarhluta félagsins í Stofnfiski hf.

Stofnfiskur hf. er stærsti framleiðandi á Íslandi á laxahrognum og er fyrirtækið auk þess leiðandi í kynbótarannsóknum fyrir fiskeldi, að því er segir á vef HB Granda.

Fram kemur, að eignarhlutur HB Granda í Stofnfiski nemi 64,94% af hlutafé félagsins og hafi bókfært verð eignarhlutarins, samkvæmt ársreikningi HB Granda vegna ársins 2013, verið skráð 7,1 milljón evra í árslok 2013.

„Ekki er hægt að áætla á þessum tímapunkti hversu lengi viðræður munu standa yfir en viðræðurnar eru bundnar nokkrum skilyrðum og fyrirvörum. Félagið mun veita frekari upplýsingar eftir því sem viðræðum vindur fram,“ segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK