Ágúst ráðinn útibússtjóri

Ágúst Arnórsson.
Ágúst Arnórsson.

Ágúst Arnórsson hefur verið ráðinn útibússtjóri Landsbankans á Egilsstöðum og tekur hann við af Arnari Páli Guðmundssyni sem nýverið var ráðinn útibússtjóri á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum.

Ágúst er 43 ára gamall og hefur starfað hjá Landsbankanum síðan 2007, fyrst sem sérfræðingur í fyrirtækjaviðskiptum á Austurlandi og svo sem aðstoðarútibússtjóri á Egilsstöðum frá árinu 2010. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og er sem stendur í vottunarnámi sem fjármálaráðgjafi við HR. Ágúst er kvæntur Maríu Veigsdóttur og eiga þau 2 börn.

Undir útibú Landsbankans á Egilsstöðum heyra afgreiðslur á Borgarfirði Eystri, Seyðisfirði og Vopnafirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK