Stjórnendur almennt bjartsýnir

mbl.is/Sigurður Bogi

Stjórnendur íslenskra fyrirtækja eru almennt bjartsýnir á horfur íslensks hagkerfis, ef marka má niðurstöður úr nýrri könnun MMR. Fyrirtækið kannaði á tímabilinu 9. til 14. október 2014 viðhorf stjórnenda íslenskra fyrirtækja til horfa í íslensku hagkerfi sem og mikilvægra þátta í rekstarumhverfi þeirra eigin fyrirtækja til næstu 12 mánaða.

Niðurstöðurnar sýna að stjórnendur eru bjartsýnir á horfur íslensks hagkerfis. Þannig sögðust 73,3% stjórnenda telja að íslenska hagkerfið muni vaxa á næstu tólf mánuðum. Í júlí 2014 sögðust 81,1% stjórnenda telja að hagkerfið myndi vaxa og í desember 2013 sögðust 58,9% telja að hagkerfið myndi vaxa á næstu 12 mánuðum.

Meirihluti stjórnenda bjartsýnn á aukna veltu og arðsemi síns fyrirtækisins á næstu 12 mánuðum. Af þeim sem tóku afstöðu nú töldu 68,4% að velta myndi aukast á næstu 12 mánuðum og 55,6% töldu að arðsemi myndi aukast. Í desember 2013 sögðust 60,7% stjórnenda telja að velta myndi aukast og 43,7% sögðust telja að arðsemi síns fyrirtækis myndi aukast á næstu 12 mánuðum.

Meiri bjartsýni ríkir meðal stjórnenda á aukna samkeppnishæfni og aukna eftirspurn eftir vöru/þjónustu síns fyrirtækis á næstu 12 mánuðum. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 51,4% stjórnenda telja að samkeppnishæfni síns fyrirtækis myndi aukast á næstu 12 mánuðum, borið saman við 45,0% í júlí 2014. 68,7% sögðust telja að eftirspurn eftir vörum/þjónustu fyrirtækisins myndi aukast á næstu 12 mánuðum, borið saman við 55,0% í desember 2013.

Tæpur þriðjungur stjórnenda taldi að starfsmönnum muni fjölga og 69% stjórnenda taldi að launakostnaður muni aukast.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK