Guðjón ráðinn til Maclands

Guðjón Pétursson.
Guðjón Pétursson.

Guðjón Pétursson hefur verið ráðinn verslunarstjóri hjá Macland í Hafnarfirði. Guðjón var áður hjá Símanum og Nova. Hafþór Ægir Vilhjálmsson er nýr sölumaður hjá Macland í Hafnarfirði en hann var áður hjá Alterna. Þá hefur Steindór Grétar Kristinsson verið ráðinn á verkstæði Macland á Laugavegi, segir í fréttatilkynningu.

Steindór er með BSc í tölvunarfræði frá HR og MSc gráðu í Sonology. Macland er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu við allar vörur tengdar Apple. Í dag eru verslanir Macland tvær, að Laugavegi 23 og nýverið opnaði Macland í Helluhrauni 18 í Hafnarfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK