Hamstra vörur í verslunum

Rússar flykkjast í búðir og kaupa vörur áður en þær …
Rússar flykkjast í búðir og kaupa vörur áður en þær hækka frekar í verði. AFP

Almenningur í Rússlandi flykkist nú í verslanir og hamstrar ýmsar vörur sem fara síhækkandi í verði með hverjum deginum sem líður vegna falls rúblunnar.

Sala á innfluttum vörum hefur rokið upp þar sem neytendur keppast við að kaupa áður en verðið hækkar og eru klukkustunda langar biðraðir við búðarkassa orðnar algeng sjón.

Alþjóðleg stórfyrirtæki á borð við Ikea og Apple hafa neyðst til þess að hætta tímabundið sölu á ákveðnum vörum og stórhækka verð annarra á meðan barist er við að halda verðinu í takt við hríðfallandi gengi. Apple hækkaði til dæmis verð á iPhone 6 símum í Rússlandi um 25% en lokaði síðar fyrir vefverslun fyrirtækisins á svæðinu. Ikea stöðvaði þá einnig tímabundið sölu á eldhúsvörum- og húsgögnum en sala hefst aftur á morgun, þann 20. desember. Þá eru fyrirtækin General Motors, Jaguar, Land Rover og Audi búin að taka fyrir sendingar til landsins. 

McDonald's hefur einnig hækkað verðið á Big Mac borgaranum um 2,2% samkvæmt frétt Bloomberg.

Verðlag hækkað um 25%

Almennt verðlag hefur alls hækkað um 25 prósent á árinu. Vla­dimír Pútín, for­seti Rúss­lands, sagði í gær að Rúss­land myndi brátt ná að jafna sig í kjöl­far verstu efna­hagskrísu sem hef­ur riðið yfir landið und­ir hans stjórn. Pútín sagðist halda ör­ugg­lega um stjórn­artaum­ana, þrátt fyr­ir refsiaðgerðir Vest­ur­veld­anna og hrun rúblunn­ar.

Mikl­ar sveifl­ur hafa verið á gengi rúblunn­ar í þess­ari viku og hækkaði rúss­neski seðlabank­inn stýri­vext­ina í 17%. 

Í myndbandinu að neðan má sjá örtröðina í verslunum.

Business Insider greinir frá þessu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK