3,1% atvinnuleysi

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun mbl.is/Ómar Óskarsson

Atvinnuleysi mældist 3,1% í nóvember samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar mældist atvinnuleysi 3,3% á Íslandi í nóvember.

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 187.300 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í nóvember 2014, sem jafngildir 80,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 171.500 starfandi og 5.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,4% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 3,1%. Samanburður mælinga í nóvember 2013 og 2014 sýnir að bæði atvinnuþátttaka og hlutfalls starfandi fólks jókst samhliða því að dregið hefur úr atvinnuleysi.

Atvinnuþátttakan jókst um 1,2 prósentustig, hlutfall starfandi jókst um 2,1 stig og hlutfall atvinnulausra minnkaði um 1,1 stig. Leita þarf aftur til október 2008 til þess að finna lægra hlutfall atvinnuleysis en í þessari mælingu, en þá mældist atvinnuleysi 2,4%

Skráð atvinnuleysi í nóvember 2014 var 3,3%, en að meðaltali voru 5.430 atvinnulausir í nóvember og fjölgaði atvinnulausum um 213 að meðaltali frá október og hækkaði hlutfallstala atvinnuleysis um 0,1 prósentustig milli mánaða, að því er segir á vef Vinnumálastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK