Icelandair Group hefur gefið út skuldabréf fyrir 23.660 þúsund Bandaríkjadali, sem svarar til þriggja milljarða króna.
Um er að ræða óveðtryggð skuldabréf til fimm ára, útgefinn í Bandaríkjadal og ber fasta 4,25% vexti sem greiðast hálfsárslega.
Í tilkynningu kemur fram að það voru innlendir fagfjárfestar sem keyptu skuldabréfin. Heildarheimild útgáfu í þessum skuldabréfaflokki er 75 milljónir Bandaríkjadala.