Þýska flugfélagið Lufthansa hefur aukið flugframboð sitt á Íslandi í sumar og hyggst fljúga þrisvar í viku milli Reykjavíkur og Frankfurt á tímabilinu frá 2. maí til 26. september nk. Þá verður einnig flogið til München á hverjum sunnudegi á sama tímabili.
Flogið verður til Frankfurt á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Lent verður í Frankfurt snemma kvölds en það mun vera hentugur tengitími fyrir fjölda annarra fluga að því er fram kemur í tilkynningu.
Þá er einnig bent á að hægt sé að tékka inn farangur alla leið, sé farið í tengiflug, með Star Alliance samstarfinu. Í gegnum Frankfurt býður Lufthansa upp á tengiflug til 190 áfangastaða í 76 löndum. Vinsælustu áfangastaðirnir hjá Íslendingum hafa verið Vín, Zürich, Róm og Mílanó.