Samkomulag hefur náðst um niðurfellingu máls slitastjórnar SPRON gegn VÍS þar sem samningsaðilar féllust á að þeir ættu engar frekari kröfur á hendur hvor öðrum hverju nafni sem þær kunna að nefnast. Enginn kostnaður fellur á VÍS vegna samkomulagsins fyrir utan eigin málskostnað.
Eins og greint var frá í útgefandalýsingu VÍS höfðaði SPRON mál á hendur VÍS þann 18. júlí 2012, þar sem m.a var krafist riftunar á endurgreiðslu SPRON þann 31. október 2008 á tveggja milljarða króna peningamarkaðsláni sem VÍS veitti SPRON í september 2008.
Þá kom jafnfram fram að Klakki ehf. fyrrum eigandi VÍS ákvað að halda VÍS skaðlausu af tjóni vegna dómsmálsins. Í því skyni skuldbatt Klakki sig til að auka eigið fé VÍS um allt að 3,5 milljarða króna í því skyni að niðurstaða dómsmálsins hafi ekki áhrif á virði hlutabréfa félagsins („áskriftarskuldbinding“).
Til tryggingar greiðslu fyrrgreindrar áskriftarskuldbindingar lagði Klakki fram ábyrgðaryfirlýsingu útgefna af Landsbankanum sem samsvarar 3,5 milljörðum króna. VÍS átti að geta krafið Landsbankann um greiðslu á grundvelli ábyrgðarinnar ef Klakki stæði ekki við skuldbindingar sínar um kaup á nýju hlutafé.
Stjórn VÍS hefur samþykkt að leysa Klakka ehf. undan áskriftarloforði sínu og bankaábyrgð í tengslum við skaðleysi VÍS af SPRON málinu enda ljóst að engin þörf er fyrir skaðleysið lengur þar sem málið er niður fallið.