Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta nam 228 milljónum króna árið 2014. Hagnaðurinn dróst saman um 71 milljón króna milli ára en hann nam 299 milljónum króna árið 2013. Hreinar rekstrartekjur jukust lítillega frá fyrra ári og námu 1,4 milljarði króna samanborið við rúma 1,3 milljarða árið áður.
Rekstrargjöld jukust þá einnig og námu um 1,1 milljarði samanborið við 980 milljónir árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem birtur var í gærkvöldi.
Heildareignir félagsins námu 2.600 milljónum í árslok 2014 en voru 2.595 milljónir í ársbyrjun. Eigið fé í árslok 2014 nam 2.035 milljónum króna en var 2.031 milljón í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 58% í árslok 2014 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
Í lok desember 2014 voru 18 sjóðir í rekstri og slitum hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 114 milljörðum króna. Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða dróst saman milli ára og var 3,3 milljarðar árið 2014 samanborið við hagnað uppá 6,5 milljarða árið 2013.
Stofnaðir voru tveir nýir fjárfestingarsjóðir á árinu; Lausafjársafn sem hóf rekstur í september og Óverðtryggður sjóður ÍS sem hóf rekstur í október.