Fjórðungur þjóðarinnar á Sinfó

Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu.
Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu. ljósmynd/Ari Magg

Á síðasta ári mættu um 79 þúsund gestir á innlenda tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Það jafngildir því að um fjórðungur landsmanna hafi sótt tónleikana.

Þar af voru gestir á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands um 76.500 manns á móti ríflega 2.600 gestum á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Gestafjöldi á innlenda tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur aukist umtalsvert hin síðari ár og voru hátt í tveimur þriðju fleiri í fyrra en á árinu 2009, en þá hafði fjöldi gesta að mestu staðið í stað um árabil. Fjöldi gesta á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands hefur haldist að miklu leyti óbreyttur frá því um miðjan tíunda áratug síðustu aldar.

Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar þar sem jafnframt segir að aukinn fjölda áheyrenda megi vafalaust skýra að miklu leyti með tilkomu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu þar sem sætaframboð á tónleika hljómsveitarinnar tvöfaldaðist í kjölfarið.

Ekki sami umsnúningur í Hofi

Viðlíka umsnúningur hefur ekki orðið á gestafjölda á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands með tilkomu Menningarhússins Hofs síðla sumars 2010 enda er hljómsveitin ekki skipuð fastráðnum hljóðfæraleikurum og markaðssvæði hljómsveitarinnar er mun fámennara en Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Á síðasta ári sóttu hátt í 240 þúsund manns almenna tónleika í þeim þremur tónleikahúsum sem starfrækt eru í landinu, það er í Hofi, Hörpu og Salnum. Það jafngildir því að sjö af hverjum tíu landsmönnum hafi sótt tónleika í húsunum á seinasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK