Súkkulaði Nóa Síríus fær QPP vottun

Kakóbaunavinnsla á Fílabeinsströndinni.
Kakóbaunavinnsla á Fílabeinsströndinni. AFP

Allt súkkulaði frá Nóa Síríus er nú framleitt úr kakóbaunum sem framleiddar eru undir merkjum QPP (Quality Partner Program), verkefnis sem miðar að því að gera kakóbændum, m.a. á Fílabeinsströndinni, kleift að rækta og framleiða á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Eitt af markmiðum aðstandenda verkefnisins er að veita þá aðstoð sem þarf með til þess að kakóræktun geti verið lifibrauð komandi kynslóða á Fílabeinsströndinni og sporna við því að barnaþrælkun sé liðin í kakósamfélaginu.

Um 33% af öllu kakói í heiminum kemur frá Fílabeinsströndinni. Tugir þúsunda kakóbænda taka þátt í QPP verkefninu og fór hlutfall kakóbauna þeirra sem telst framúrskarandi úr 11% í 88% á nokkrum árum, segir í fréttatilkynningu frá Nóa Síríus. Í tilkynningunni kemur fram að Nói Síríus sé fyrsta íslenska fyrirtækið sem taki þátt í verkefninu.

Með þeirri fræðslu og aðstoð sem QPP veitir bændunum stuðlar verkefnið einnig að bættum lífsskilyrðum fyrir þá sjálfa og fjölskyldur þeirra, til dæmis með auknum aðgangi að heilsugæslu, menntun, tómstundum og hreinu vatni. 

Starfsmenn Nóa Síríus heimsóttu kakóbændur á Fílabeinsströndinni en þar fengu þeir tækifæri til að skyggnast inn í líf bændanna og fræðast um vinnuna á bakvið kakóbaunirnar sem á endanum verða að súkkulaði í verksmiðju Nóa Síríus.

Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus, segir QPP verkefnið skref í rétta átt. „Okkur er það mikil ánægja að geta lagt okkar af mörkum til að bæta lífsgæði kakóbænda og fjölskyldna þeirra á Fílabeinsströndinni.“

Börn á Fílabeinsströndinni.
Börn á Fílabeinsströndinni. Ljósmynd/Nói Síríus
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK