Landsbankinn og Sparisjóður Vestmannaeyja renna saman

mbl.is/Jim Smart

Fjármálaeftirlitið hefur tekið ákvörðun um samruna Landsbankans og Sparisjóðs Vestmannaeyja frá og með í dag. Mun starfsemi útibúa sparisjóðsins haldast óbreytt fyrst um sinn.

Samruninn er til kominn þar sem Sparisjóður Vestmannaeyja hefur um nokkurt skeið ekki uppfyllt lögbundnar kröfur um eigið fé og þurfti því að finna lausnir á fjárhagsvanda sínum. Var ákvörðunin um samruna tekin í dag klukkan 15. Stofnfé sparisjóðsins er metið á 332 milljónir króna við samrunann. Er matið háð hugsanlegum leiðréttingum en getur aldrei orðið minna en 50 milljónir og aldrei meira en 550.

Sem endurgjald fyrir stofnfé sparisjóðsins fá fyrrverandi stofnfjáreigendur sparisjóðsins hlutabréf í Landsbankanum sem nemur tæplega 0,15% af útgefnu hlutafé bankans og er endanlegur hlutur háður mati á virði stofnfjár sjóðsins.

Í tilkynningu frá Landsbankanum segir að áhersla verði lögð á að efla þjónustu við viðskiptavini og samskipti þeirra við bankann. Munu öll útibú sparisjóðsins opna á venjubundnum tíma á morgun og munu reikningar og reikningsnúmer haldast óbreytt fyrst um sinn.

„Stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja hefur að undanförnu leitað leiða til að tryggja rekstrargrundvöll sjóðsins. Með samkomulagi við Landsbankann hefur náðst farsæl niðurstaða sem tryggir hag sjóðsins, eigenda hans og viðskiptavina og almannahag á þeim stöðum þar sem sparisjóðurinn hefur starfsemi. Vegna stöðu sparisjóðsins var óhjákvæmilegt að leita samstarfs við traustan aðila til framtíðar og við viljum þakka Landsbankanum fyrr samstarfið á undanförnum dögum,“ segir Þorbjörg Inga Jónsdóttir, fráfarandi sjtórnarformaður Sparisjóðs Vestmannaeyja, í tilkynningu til fjölmiðla.

„Sparisjóður Vestmannaeyja hefur gegnt mikilvægu hlutverki á þeim stöðum þar sem hann hefur haft starfsemi. Landsbankinn mun leggja sig fram um að taka vel á móti viðskiptavinum sparisjóðsins og sinna þeim eins og best verður á kosið. Við leggjum áherslu á að samþætting í kjölfar samrunans gangi vel og hratt fyrir sig til þess að tryggja öfluga fjármálaþjónustu á þessum svæðum. Ég býð viðskiptavini sparisjóðsins velkomna í Landsbankann,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, í sömu tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK