Tæplega 11% samdráttur í aflaverðmæti

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands fyrir árið 2014 hefur aflaverðmæti dregist saman um 10,9% samanborið við árið 2013.

Aflaverðmæti botnfisks nam rúmum 92 milljörðum á árinu sem er 1,1% samdráttur frá fyrra ári. Verðmæti botnfisktegunda annarra en þorsks dróst saman á milli ára, verðmæti þorskaflans jókst um 11,9% og nam tæpum 53 milljörðum króna árið 2014.

Af flatfiski nam aflaverðmæti rúmum 7 milljörðum á síðasta ári og dróst saman um 28% frá fyrra ári. Þar vegur þyngst ríflega 2,6 milljarða samdráttur í aflaverðmæti grálúðu.

Verðmæti uppsjávarafla dróst saman um 26,5% á milli ára. Aflaverðmæti loðnu dróst verulega saman á milli ára, nam rúmum 3,8 milljörðum króna á síðasta ári samanborið við tæplega 16,4 milljarða árið 2013. Aflaverðmæti síldar var 9,5 milljarðar á síðasta ári og lækkaði um rúm 10% frá fyrra ári. Aflaverðmæti makríls nam 15,3 milljörðum króna árið 2014 og stóð nokkurn veginn í stað frá fyrra ári. Verðmæti kolmunnaaflans jókst hins vegar umtalsvert og nam 4,7 milljörðum samanborið við ríflega 3 milljarða árið 2013.

Verðmæti skel- og krabbadýra nam tæpum 3,7 milljörðum króna á síðasta ári sem er 17,8% samdráttur frá fyrra ári. Verðmæti rækjuaflans nam ríflega 2,5 milljörðum og dróst saman um 29% en aflaverðmæti humars nam rúmum milljarði og jókst um tæp 29% samanborið við árið 2013, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK