Fjáreignir fyrirtækja jukust um 13%

Fjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja jukust um 13% að nafnvirði …
Fjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja jukust um 13% að nafnvirði á milli ára og stóðu í 4.390 milljörðum króna í árslok 2013 samkvæmt nýuppfærðum tölum Hagstofu Íslands. mbl.is/Golli

Fjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja jukust um 13% að nafnvirði á milli ára og stóðu í 4.390 milljörðum króna í árslok 2013 samkvæmt nýuppfærðum tölum Hagstofu Íslands. Á sama tíma lækkuðu fjárskuldbindingar þeirra um 7% og námu 7.015 milljörðum króna. Hreinar fjáreignir fyrirtækja annarra en fjármálafyrirtækja voru neikvæðar um 2.625 milljarða króna, eða 140% af vergri landsframleiðslu í lok árs 2013.

Hreinar fjáreignir fjármálafyrirtækja voru neikvæðar um 6.449 milljarða króna í árslok 2013 séu fjármálafyrirtæki í slitameðferð meðtalin. Hreinar fjáreignir fjármálafyrirtækja í slitameðferð voru neikvæðar um 6.485 milljarða króna á sama tíma. Sé litið framhjá fjármálafyrirtækjum í slitameðferð voru hreinar fjáreignir fjármálafyrirtækja jákvæðar um 36 milljarða króna árið 2013.

Hreinar fjáreignir hins opinbera og undirgeira þess voru neikvæðar um 973 milljarða króna í árslok 2013 og höfðu skuldir umfram eignir aukist um 2,1% frá fyrra ári.

Heimili og félagasamtök áttu 2.487 milljarða

Hreinar fjáreignir heimila og félagasamtaka jukust um 7,9% milli ára og voru 2.487 milljarðar króna í árslok 2013 sem jafngildir 132,2% af vergri landsframleiðslu. Fjáreignir þeirra námu 4.232 milljörðum króna í árslok 2013, en stærstu fjáreignir heimila eru lífeyrisréttindi. Virði hlutabréfaeignar heimila og félagasamtaka dróst saman um 20,5% á milli áranna 2012 og 2013 og nam 190 milljörðum króna í árslok 2013. Fjárskuldbindingar heimila og félagasamtaka voru 1.745 milljarðar króna á sama tíma.

Heildarfjáreignir innlendra efnahagsgeira námu 24.122 milljörðum króna í árslok 2013 en fjárskuldbindingar voru 31.682 milljarðar króna á sama tíma. Fjáreignir erlendra aðila á Íslandi námu 12.941 milljörðum króna en fjárskuldbindingar við innlenda aðila voru 5.372 milljarðar króna í árslok 2013. Hreinar fjáreignir erlendra aðila á Íslandi voru í árslok 2013 7.569 milljarðar króna og höfðu rýrnað um 8,2% frá fyrra ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK