Ójafnvægi en ekki eignabóla á fasteignamarkaði

Eftirspurn eftir smærra og ódýrara húsnæði er að aukast og …
Eftirspurn eftir smærra og ódýrara húsnæði er að aukast og er spáð áframhaldandi hækkun á fasteignum næstu árin. mbl.is/Ómar Óskarsson

Mikil eftirspurn er að myndast eftir minna húsnæði og er því helsti vandi fasteignamarkaðarins skortur á ódýru og smærra húsnæði, einkum á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram í spá Capacent um fasteignamarkaðinn. Snorri Jakobsson, ráðgjafi og sérfræðingur hjá Capacent, segir í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag, að fjölmenn kynslóð eftirstríðsáranna, sem er að ná 75 ára aldri, vilji minnka við sig og komast í smærra húsnæði auk þess sem yngri kynslóðin sem ætlar að kaupa sína fyrstu íbúð sé mjög fjölmenn.

„Það verður mikil fjölgun í hópi fólks á svonefndum húseignaraldri til 2020. Það er því ekki um fasteignabólu að ræða heldur ójafnvægi sem byrjaði að myndast 2012.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK