Chipotle gefur guacamole uppskriftina

Chipotle
Chipotle AFP

Skyndibitakeðjan Chipotle hefur verið þekkt fyrir sérstaklega gott guacamole sem rukkað er sérstaklega fyrir á veitingastöðum keðjunnar. Uppskriftin hefur verið viðskiptaleyndamál hingað til en af einhverjum ástæðum var hún gefin upp á vefsíðu fyrirtækisins á sunnudag.

Helsti lykillinn er þó að finna gott hráefni að sögn Chipotle. En uppskriftin hljóðar svo:

  • 2 þroskuð avókadó
  • 2 teskeiðar af límónusafa
  • 2 teskeiðar af kóríander
  • 1/4 bolli af fínsöxuðum rauðlauk
  • 1/2 fínsaxað jalapeno með fræjum
  • 1/4 teskeið salt
  1. Skera avókadóin í tvennt og fjarlægja steininn
  2. Skafa avókadóin með skeið og setja í skál
  3. Hræra með límónusafa
  4. Bæta við salti og stappa með gaffli
  5. Bæta restinni af hráefnunum við
Frá veitingastað Chipotle
Frá veitingastað Chipotle AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK