Ása ráðin framkvæmdastjóri Gerplu

Ása Inga Þor­steins­dótt­ir
Ása Inga Þor­steins­dótt­ir Aðsend mynd

Ása Inga Þor­steins­dótt­ir hef­ur verið ráðin nýr fram­kvæmda­stjóri Íþróttafélagsins Gerplu.

Ása Inga er fædd árið 1982 og hef­ur verið starfsmanna- og þjónustustjóri Gerplu ásamt því að hafa verið deildarstjóri hjá félaginu til fjölda ára. Þá hefur Ása verið þjálfari hjá félaginu og þjálfaði m.a. Evrópu- og Norðurlandameistara í hópfimleikum. 

Ása Inga lauk B.Ed. gráðu frá Kenn­ara­há­skóla Íslands árið 2007 og út­skrif­ast í júní með MBA-gráðu frá Há­skól­an­um í Reykja­vík.

Tæplega 30 manns sóttu um starfið en Capacent mat hæfni umsækjenda og aðstoðaði stjórn Gerplu við ráðning­ar­ferlið. Ása tek­ur við starf­inu af Auði Ingu Þorsteinsdóttur sem gegnt hef­ur því síðastliðin níu ár.

Í tilkynningu segir að Ása og Auður séu systur, eins og margir Gerplufélagar vita, og óskar stjórn Gerplu Ásu velkomna til starfa um leið og Auði er þakkað fyrir hennar störf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK