16,2 milljarðar úr sjó í febrúar

Verðmæti afla upp úr sjó nam tæpum 16,2 milljörðum í febrúar, 41,7% meira en í febrúar 2014. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Vegur þar þyngst aflaverðmæti loðnu sem nam tæpum 6 milljörðum og jókst um u.þ.b. 4 milljarða samanborið við febrúar 2014. Aflaverðmæti þorskaflans nam 6,2 milljörðum í febrúar sem er ríflega 24% aukning miðað við sama mánuð 2014.

Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabili frá mars 2014 til febrúar 2014 nam 142,6 milljörðum og er nánast óbreytt miðað við 12 mánaða tímabil árið áður. Á tímabilinu hefur verðmæti botnfisk- og uppsjávarafla aukist en á móti hefur aflaverðmæti flatfisks og skel- og krabbadýra dregist saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK