Breyta nafninu í Park Inn

Icelandair hótel Keflavík.
Icelandair hótel Keflavík. Mynd/Icelandair

Eigendur Icelandair hótelsins í Keflavík munu breyta nafni hótelsins í Park Inn by Radisson efir að hafa gengið til samstarfs við Carlson Rezidor, eina stærstu hótelkeðju heims. Samstarfssamningurinn tekur gildi á haustdögum en fyrir eru tvö hótel hérlendis í samstarfi við Carlson Rezidor, það eru Radisson Blu Saga og Radisson Blu1919.

Í tilkynningu frá hótelinu segir að helsta ástæða breytinganna séu þeir möguleikar sem felist í þeirri miklu áherslu sem Park Inn by Radisson leggur á rekstur flugvallarhótela en keðjan rekur nú þegar hótel við alla helstu millilandaflugvelli í Evrópu. Samningaviðræður við erlendu hótelkeðjuna stóðu yfir í töluverðan tíma en gengið var frá þeim í síðustu viku.

„Við kveðjum Icelandair hótelin eftir tæplega tveggja áratuga ánægjulegt samstarf. Framundan eru spennandi tímar enda mikill ávinningur fyrir hótelið að ganga til samstarfs við og verða hluti af bókunarkerfi alþjóðlegrar hótelkeðju,“ segir Bergþóra Sigurjónsdóttir hótelstjóri, en hótelkeðjan rekur tæplega 1.400 hótel með um 180.000 herbergjum.

Eftir breytingar sem nýlega og væntanlegar breytingar á hótelinu uppfyllir það allar gæðakröfur Park Inn by Radisson, meðal annars hvað varðar þægindi, funda- og ráðstefnuaðstöðu. Á hótelinu eru sex fundasalir sem rúma frá 10 til 300 manns. Herbergi hótelsins eru 77 talsins, þar af voru 14 þeirra tekin í notkun nýverið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK