478 milljóna gjaldþrot Róberts

mbl.is

Gjaldþrotaskiptum hjá fjárfestinum Róberti Melax var lokið hinn 22. júní síðastliðinn. Ekkert fékkst greitt upp í kröfur sem námu rúmum 478 milljónum króna.

Þetta kemur fram í Lögbirtingarblaðinu í dag. Róbert var úrskurðaður gjaldþrota hinn 4. júní 2014.

Ró­bert átti um tíma stór­an hlut í Íslands­banka og sat um leið í stjórn bank­ans. Þá átti hann hlut í Saga fjár­fest­inga­banka, átti Jarðafé­lagið Yzta­fell ehf og kom að Hanza hópn­um svo­kallaða, sem byggði upp stórt fjöl­býl­is­hús í Akra­hverf­inu í Garðabæ.

Ró­bert kom einnig að öðrum fast­eigna­verk­efn­um og var stór hlut­hafi í City Center Properties fé­lag­inu sem keypti átta stór­ar fast­eign­ir í Osló og Ber­gen í Nor­egi. Í til­kynn­ingu með þeim kaup­um kom fram að fé­lagið væri orðið eitt af 20 stærstu fast­eigna­fyr­ir­tækj­um Nor­egs.

Ró­bert efnaðist vel á Lyfju, en apó­tekið var upp­haf­lega stofnað árið 1996. Ásamt Ró­berti var Ingi Guðjóns­son á bak við það, en Lyfja sam­einaðist Lyfja­búðunum ehf. árið 2000. Þær voru í eigu Jó­hann­es­ar Jóns­son­ar í Bón­us, Guðmundu Reykjalín viðskipta­fræðings og þriggja lyfja­fræðinga. Árið 2004 seldi Ró­bert all­an hlut sinn til Haga, sem urðu í fram­hald­inu eig­end­ur alls fyr­ir­tæk­is­ins.

Um tíma var hann einnig aðal­eig­andi og stjórn­ar­formaður Dags Group, en fé­lagið átti meðal ann­ars BT, Skíf­una og Senu. Árið 2000 greiddi hann hæstu op­in­beru gjöld í Reykja­nesum­dæmi, eða rúma 21 millj­ón króna.

Ró­bert virðist hafa tapað tölu­verðum eign­um í hrun­inu. Meðal ann­ars var fast­eigna­fé­lagið Hanza-hóp­ur­inn tek­inn til gjaldþrota­skipta eft­ir að hafa verið eig­andi að stór­um verk­efn­um á Arn­ar­nes­hæð í Garðabæ.

Ró­bert hef­ur und­an­far­in ár verið bú­sett­ur er­lend­is, en lög­heim­ili hans er skráð í Afr­íku. Á síðasta ári óskaði hann eft­ir því að kaupa Ljósvetn­inga­búð í Þing­eyj­ar­sveit, en hann hugðist byggja þar upp ein­hvers­kon­ar ferðaþjón­ustu.

Frétt mbl.is: Róbert Melax gjaldþrota

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK