Gjaldþrota 50 cent í glæsihýsi

Húsið hans 50 cent er nokkuð stórt.
Húsið hans 50 cent er nokkuð stórt. Mynd/Goole maps

Fjölmiðlar voru ekki lengi að draga upp mánaðargamla vitnaskýrslu 50 cent um ríkulegan lífstíl eftir að hann óskaði eftir gjaldþrotaskiptum á dögunum.

Skýrslan er frá réttarhöldum í máli er tengdist kynlífsmyndbandi sem rapparinn gaf út. 50 cent hafði gefið myndbandið út án samþykkis konunnar Lastonia Leviston. Hún kærði hann í kjölfarið og 50 cent var að lokum dæmdur til þess að greiða henni 5 milljónir dollara, eða um 673 milljónir íslenskra króna, í miskabætur.

Eftir að dómurinn féll fylgdi 50 cent ráðum lögmanns síns og óskaði eftir gjaldþrotaskiptum til þess að komast undan greiðslu.

Í vitnaskýrslunni kemur fram að 50 cent, eða Curtis Jackson, eins og hann raunverulega heitir, á einbýlishús með 21 svefnherbergi, 24 baðherbergjum, skemmtistað, bíósal, körfuboltavelli, sundlaug og stórri jörð. 

Í frétt Business Insider má lesa afrit af vitnaskýrslunni.

Rapparinn 50 Cent
Rapparinn 50 Cent AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK