Fjölmargir fjárfestar og aðrir áhugamenn um nýsköpun mættu í höfuðstöðvar Arion banka við Borgartún í morgun en þar fór fram Fjárfestadagur Startup Reykjavík.
Startup Reykjavík er viðskiptahraðall sem árlega fjárfestir í 10 hugmyndum. Markmiðið er að skapa umgjörð þar sem þátttakendur njóta ráðgjafar og leiðsagnar reynslumikilla aðila í þeim tilgangi að ýta úr vör nýjum viðskiptatækifærum.
Í maí voru tíu teymi valin til þátttöku í Startup Reykjavík. Alls bárust um 150 umsóknir. Hraðallinn var nýverið valinn besti viðskiptahraðall Norðurlandanna og fer fram í fjórða sinn í sumar á vegum Arion banka og Klak Innovit.
Í dag fengu teymin tækifæri til þess að kynna verkefni sín fyrir mögulegum fjárfestum. Verkefnin eru að ýmsum toga og tekur fólk á öllum aldri þátt. Verkefnin eru þessi:
- Wasabi Iceland - Ætla að rækta hágæða wasabi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og endurnýjanlega orku
- Ludis- Munu nútímavæða borðspil þar sem síminn þinn er stjórntækið og sjónvarpið borðspilið
- Viking Cars - Vettvangur til þess að deila bílnum sínum með öðrum með öruggum hætti - þetta er eins og Airbnb fyrir bíla
- Spor í sandinn - Munu byggja sjálfbært vistkerfi í hjarta borgarinnar sem býður upp á nýja upplifun í ferðaþjónustu
- Genki instruments – Eru að þróa nýstárleg raftónlistarhljóðfæri sem tengja má saman með áður óséðum hætti
- Datadrive - Hugbúnaður sem tekur við upplýsingum úr bílnum þínum og tengir beint við snjallsímann
- Delphi - Nýta þekkingu fjöldans til þess að spá fyrir um tiltekna viðburði í framtíðinni
- Hún / Hann Brugghús - Stefna að því að búa til hágæða bjór úr íslenskum hráefnum
- Study Cake- Hannar smáforrit sem gerir foreldrum kleift að verðlauna börn fyrir lestur.
- Þoran Distillery- Framleiða viskí úr íslenskum hráefnum.