66°norður opnar á Strikinu

Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66 norður.
Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66 norður.

Fataframleiðandinn 66°norður mun í september opna aðra verslun sína í Kaupmannahöfn og að þessu sinni verður hún á sjálfu Strikinu, sem flestir verslanaþyrstir Íslendingar þekkja vel. Húsnæðið sem mun hýsa verslunina var byggt árið 1826, en það er nákvæmlega 100 árum áður en Sjóklæðagerðin var stofnuð á Íslandi.

Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri félagsins, segir í samtali við mbl.is að verið sé að byggja búðina upp, en hún verður staðsett á Östergade 6, í neðsta hluta Striksins, rétt við Kongens Nytorv.

Opna innan um Gucci, Hermes og Louis Vuitton

Í október á síðasta ári opnaði fyrirtækið aðra verslun, ekki langt frá, við Sværtegade, en Helgi segir að þrátt fyrir mikla nálægð þá sé þarna um algjörlega aðskilinn markhóp að ræða. Á Strikinu komi mikið af ferðamenn og mikill vöxtur sé á þessu svæði í fataverslunum sem horfi til ferðamanna. Nefnir hann að margar lúxusverslanir hafi opnað þarna undanfarið, svo sem Gucci, Hermes og Louis Vuitton.

Verslunin í Sværtegade er að hans sögn aftur á móti stíluð mun meira á heimamenn, enda sé hún í einni af hliðargötunum niðri í miðbæ þar sem íbúar Kaupmannahafnar versli meira sjálfir.

Sölupláss í nýju versluninni verður um 90 fermetrar, en það er litlu minna en í fyrri versluninni. Segir Helgi að reynt verði að bjóða upp á allar vinsælustu vörur fyrirtækisins á nýja staðnum, en stærðin muni þó eitthvað takmarka vöruframboðið.

Ef frá eru taldar verslanir sem voru reknar um stutta stund í Lettlandi þar sem framleiðsla fyrirtækisins er, þá eru þetta fyrstu tvær verslandi 66°norður erlendis. Helgi segir að verið sé að klára að ganga frá ráðningum, en að aðeins sé um að ræða starfsfólk verslananna. Ekki verði opnuð skrifstofa í Danmörku, heldur verði öll bakvinnsla, markaðsmál o.s.frv. áfram á Íslandi.

Vitlausir í ullina í Danmörku

Aðspurður út í það af hverju Danmörk hafi orðið fyrir valinu segir Helgi að Danir hafi sýnt vörumerkinu mikinn áhuga hér á landi og verið hrifnir af því. Þá séu Skandínavíulöndin áhugaverður staður út af veðráttu sem passi vörulínu fyrirtækisins. Danmörk er einnig eina Skandínavíulandið sem á ekki sitt eigið stóra útivistarmerki, að sögn Helga. Það geri samkeppnisumhverfið öðruvísi og sé betra fyrir ný fyrirtæki á markaðinum.

Hjólreiðar eru mjög vinsælar í Danmörku og segir Helgi að hingað til hafi regnkápur fyrirtækisins slegið í gegn hjá Dönum. Þá sé einnig talsvert um sölu á svokölluðum skeljum, en það er veðurþolið ysta lag. Þá segir hann Dani einstaklega áhugasama um merinó ullarfatnað sem fyrirtækið hefur hannað. Segir Helgi það áhugavert í ljósi þess að þar sem fyrirtækið hafi selt sína vörur í gegnum þriðja aðila erlendis, þá hafi ullarfatnaðurinn ekki notið mikilla vinsælda. „En þeir eru vitlausir í þetta í Danmörku,“ segir hann og bætir við að kauphegðun Dana sé ekki ólík kauphegðun Íslendinga.

Nýja verslun 66 norður verður á Strikinu, en framkvæmdir standa …
Nýja verslun 66 norður verður á Strikinu, en framkvæmdir standa nú yfir við að innrétta búðina. Á meðan prýðir myndefni sem var tekið af Benna Valssyni búðagluggana.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK