Hagnaður Eikar nemur 1,5 milljarði

Turninn í Kópavogi er ein af helstu eignum Eikar.
Turninn í Kópavogi er ein af helstu eignum Eikar. mbl.is/Árni Sæberg

Eik fasteignafélag hagnaðist um 1,5 milljarða á fyrstu 6 mánuðum ársins, en árshlutauppgjör var birt í dag. Rekstrartekjur tímabilsins námu 2,88 milljörðum og er eiginfjárhlutfall 31%. Einskiptiskostnaður vegna skráningar hlutafjár félagsins á markað nam 88 milljónir á tímabilinu. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallar í dag.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum) nam 75,7% á fyrri árshelmingi ársins 2015 og 75,9% á öðrum ársfjórðungi 2015, samanborið við 77,5% árið 2014.

Á árinu 2014 nánast þrefaldaðist félagið að stærð með kaupum á EF1 hf. og Landfestum ehf. Þar sem rekstur EF1 hf. og Landfesta ehf. var ekki kominn að fullu inn í rekstur samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi 2014 er samanburður við það tímabil nokkuð ómarktækur. EF1 og Landfestar komu að fullu inn í rekstur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi 2014.

Heildareignir félagsins námu 65.827 milljónir þann 30. júní 2015, þar af námu fjárfestingareignir 63.851 milljónum. Eigið fé félagsins nam 20.431 milljónum í lok júní 2015 og var eiginfjárhlutfall 31%. Heildarskuldir félagsins námu 45.395 milljónum þann 30. júní 2015, þar af voru vaxtaberandi skuldir 41.848 milljónum og tekjuskattsskuldbinding 2.940 milljónum.

Virðisútleiguhlutfall samstæðu Eikar í lok júní 2015 var 91,8% og hafði hækkað um 0,2% frá lok fyrra tímabils. Ef tekið er tillit til eigna í þróun þá var virðisútleiguhlutfallið óbreytt, eða 92,6% í lok júní 2015.

Eik fasteignafélag hf. sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals yfir 273 þúsund fermetra. Virði fjárfestingareigna félagsins er um 64 milljarðar og heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og 26, Nýi Glæsibær, Turninn í Kópavogi, Smáratorg og Austurstræti 5,6,7 og 17. Stærstu leigutakar eru Fasteignir ríkissjóðs, Húsasmiðjan, Landsbankinn, Rúmfatalagerinn, Skipti, Deloitte og VÍS.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 48%. Næst koma verslunarhúsnæði 31%, lagerhúsnæði 9%, veitingahúsnæði 4% og hótel 3%. Um 88% fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 39% á fjármála- og viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108) og 13% í miðbæ Reykjavíkur. 12% eignasafnsins er á landsbyggðinni, þar af 10% á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK