Pia nýr sölustjóri Bacco Seaproducts

Pia Nygaard Larsen
Pia Nygaard Larsen Aðsend mynd

Pia Nygaard Larsen hefur verið ráðin í starf sölustjóra Bacco Seaproducts en hún verður með aðsetur í Danmörku.

Í tilkynningu segir að Pia hafi reynslu af sölumálum í sjávarútvegi og víðtæka tungumálakunnáttu. Undanfarin átta ár hefur hún gegnt störfum fyrir Marz Seafood og þar áður starfaði hún um árabil fyrir Nowaco A/S og Royal Greenland Seafood A/S.

Þá segir að ráðningin sé liður í því að efla sölustarfsemi Bacco Seaproducts á heimsvísu og bæta enn frekar þjónustuna við birgja fyrirtækisins.

Bacco Seaproducts er útflutningsfyrirtæki sem varð til um síðustu áramót þegar fyrirtækin Bacco ehf. og Seaproducts Iceland ehf. gengu í eina sæng, en bæði höfðu fyrirtækin flutt saltaðar og frosnar fiskafurðir á erlenda markaði um árabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK