Besta sætanýtingin í september

Mynd/Icelandair

Farþegum Icelandair í september fjölgaði um tuttugu og tvö prósent milli ára og voru þeir alls 317 þúsund talsins. Framboðsaukning var sautján prósent milli ára og sætanýting batnaði um rúm þrjú prósent og nam rétt rúmum áttatíu og þremur prósentum.

Sætanýtingin hefur aldrei verið hærri í september.

Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 27 þúsund í september sem er aukning um þrjú prósent milli ára. Sætanýting nam 77,8 prósentum og jókst um 2,7 prósentustig samanborið við september 2014.

Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um þrjátíu prósent milli ára.

Fraktflutningar jukust um fimm prósent frá því á síðasta ári.

Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um átta prósent á milli ára. Herbergjanýting var 83,4 prósent og var 2,1 prósentustigi hærri en í september 2014.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK