Kauphöllin samþykkir Símann

Frá Kauphöllinni.
Frá Kauphöllinni. mbl.is/Þórður

Nasdaq Iceland hefur samþykkt umsókn Símans um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Þann 2. október sl. samþykkti Kauphöllin umsókn Símans að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár. Þeim skilyrðum hefur nú verið fullnægt. Fyrsti viðskiptadagur með hluti Símans verður 15. október nk.

Líkt og mbl greindi frá í morgun var um­fram­eft­ir­spurn í útboði Sím­ans á 21 pró­sent hlut í bank­an­um. Tæp­lega 5.000 fjár­fest­ar óskuðu eft­ir kaup­um á hluta­bréf­um í Sím­an­um fyr­ir sam­tals um 33 millj­arða króna og er niðurstaða bank­ans að selja um 4.600 þeirra sam­tals 21% hlut fyr­ir um 6,7 millj­arða króna.

Útboðinu lauk í gær og var vegið meðal­gengi í þeim viðskipt­um 3,33 krón­ur á hlut. Miðað við þá niður­stöðu er markaðsvirði alls hluta­fjár í Sím­an­um um 32 millj­arðar króna.

Frétt mbl.is: 5.000 vildu kaupa hlut í Símanum

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK