Arion stækkar skuldabréfaflokka

Arion banki
Arion banki mbl.is

Arion banki lauk í gær útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi.

Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um fimm hundruð milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 3,10 prósent og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 1,2 milljarða króna á ávöxtunarkröfunni 3,08 prósent.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3,26 milljarðar króna.

Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi.

Arion banki nýtir sértryggð skuldabréf til fjármögnunar á íbúðalánum til einstaklinga. Arion banki veitir nú verðtryggð íbúðalán á 3,80% föstum vöxtum til fimm ára og 3,65% breytilegum vöxtum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK