Stjórnendur ráðnir til PCC BakkiSilicon

Hafsteinn Viktorsson
Hafsteinn Viktorsson

Hafsteinn Viktorsson og Jökull Gunnarsson hafa verið ráðnir til PCC BakkiSilicon hf. á Húsavík.

Hafsteinn Viktorsson hefur verið ráðinn sem forstjóri PCC BakkiSilicon frá og með mars 2017. Hafsteinn mun þó koma til starfa fyrr og starfa sem framkvæmdastjóri tæknisviðs frá júní 2016.

Hafsteinn er viðhaldsfræðingur frá St. Louis University að mennt og á árunum 2005 til 2010 starfaði hann hjá Alcoa Fjarðaráli. Fyrst sem framkvæmdastjóri áreiðanleika- og raforkuteymis 2005 til 2008, árin 2008 til 2009 starfaði hann sem framkvæmdastjóri heilsu- og öryggisteymis og á árunum 2008 til 2010 sem framkvæmdastjóri framleiðslu ásamt því að vera staðgengill forstjóra.

Síðustu ár hefur Hafsteinn starfað að fjárfestingaverkefnum fyrir móðurfélag Alcoa Fjarðaráls. Áður starfaði Hafsteinn hjá Icelandair. Hafsteinn er kvæntur Borghildi Ísfeld Magnúsdóttur og eiga þau 2 börn.

Jökull Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá PCC BakkiSilicon og mun hefja störf í mars 2016. Jökull er verkfræðingur að mennt og hefur hann undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri hjá Rio Tinto Alcan. Fyrst sem leiðtogi kerreksturs árin 2004 til 2007 og síðan sem framkvæmdastjóri kerskála árin 2007 til 2012 og frá árinu 2012 sem framkvæmdastjóri Steypuskál. Áður starfaði Jökull fyrir Marel á Íslandi. Jökull er kvæntur Ástu Sigfúsdóttur og eiga þau 4 börn.

Jökull Gunnarsson
Jökull Gunnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK