Geta innheimt en ekki endurgreitt

Fyrirtæki sem stunda framleiðslu og/eða innflutning áfengis eiga rétt á …
Fyrirtæki sem stunda framleiðslu og/eða innflutning áfengis eiga rétt á að fá áfengisgjald af vöru sinni endurgreitt ef hún verður óseljanleg vegna þess til dæmis að hún rennur út eða umbúðir skemmast Heiðar Kristjánsson

Fyrirtæki sem stunda framleiðslu eða innflutning á áfengi eiga inni háar fjárhæðir hjá ríkissjóði vegna þess að áfengisgjöld hafa ekki fengist endurgreidd af óseljanlegri vöru. Ástæðan er seinagangur hjá embætti tollstjóra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda sem hefur sent tollstjóraembættinu bréf um málið.

Fyrirtæki sem stunda framleiðslu og/eða innflutning áfengis eiga rétt á að fá áfengisgjald af vöru sinni endurgreitt ef hún verður óseljanleg vegna þess til dæmis að hún rennur út eða umbúðir skemmast. Til þess að fá endurgreiðslu verður að farga vörunni undir eftirliti tollyfirvalda.

„Samkvæmt upplýsingum frá aðildarfyrirtækjunum er mikill misbrestur á því að embætti tollstjóra sjái sér fært að verða skjótt við beiðnum um að hafa eftirlit með förgun áfengis. Hefur manneklu verið borið við. Dráttur á því að orðið sé við beiðni um slíkt nemur oft og iðulega mörgum mánuðum og í sumum tilvikum nokkrum árum. Er undirrituðum þannig kunnugt um tilvik þar sem fjögur ár liðu frá því beiðni var send tollstjóraembættinu og þar til því varð við komið að hafa eftirlit með förgun áfengis,“ segir í bréfi Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra FA, til tollstjóra.

Umtalsvert tjón

Hann bendir á að þessi seinagangur hafi í för með sér umtalsvert tjón fyrir fyrirtækin sem í hlut eiga. Fjárbinding vegna áfengisgjalda, sem ekki fást endurgreidd, geti numið milljónum króna. Þá geti geymslukostnaður hlaupið á hundruðum þúsunda og dæmi séu um að innflutningsfyrirtæki fái jafnframt sektir frá birgjum vegna þess að margnota umbúðum er ekki skilað.

Í bréfi FA er bent á að þetta sé bagalegt fyrir fyrirtækin, ekki síst af því að ekki vanti mannskap þegar á að innheimta af þeim opinber gjöld. Bara þegar þau eiga rétt á endurgreiðslu. 

Hér má lesa bréfið í heild.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK