Helmingur orðið fyrir óþægindum vegna vetrarfrís

Mynd/Félag atvinnurekenda

Rétt um helmingur aðildarfyrirtækja í Félagi atvinnurekenda hefur orðið fyrir óþægindum vegna vetrarfría í grunn- og leikskólum. Þetta er meðal niðurstaðna í könnun sem FA lagði fyrir aðildarfyrirtækin í janúar.

FA og fleiri samtök í atvinnulífinu hafa gagnrýnt að vetrarfríin skuli hafa verið sett á án nokkurs samráðs við atvinnurekendur.

„Þrátt fyrir yfirlýst markmið um að fjölga samverustundum barna og foreldra verður niðurstaðan oft önnur; ekki geta allir foreldrar tekið sér frí og niðurstaðan verður óþægindi, stress og leiðindi fyrir börn, foreldra og fyrirtæki,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að talsvert sé um að foreldrar séu farnir að geyma sumarleyfisdaga til að nota í vetrarfríi barnanna. „En niðurstaðan af því er ekki fleiri samverustundir barna og foreldra, heldur frekar að sameiginlegt frí fjölskyldunnar dreifist meira yfir árið.“

Könnunin var gerð dagana 19.-26. janúar. Hún var send til forsvarsmanna 150 fyrirtækja með beina félagsaðild og svöruðu 94, eða 62,7%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK