Reynir framkvæmdastjóri Ferro Zink

Reynir B. Eiríksson
Reynir B. Eiríksson

Reynir B. Eiríksson tók í gær við starfi framkvæmdastjóra Ferro Zink hf. af Helga Gústafssyni sem mun taka að sér sérverkefni innan fyrirtækisins.

Reynir er 53 ára vélaverkfræðingur og hefur áður starfað sem framleiðslustjóri hjá Norðlenska og Skinnaiðnaði, og sem framkvæmdastjóri Mekka tölvulausna. Nú síðast var Reynir vörustjóri Innova MES hugbúnaðar hjá Marel.

Í tilkynningu segir breytingin hafi verið gerð í tengslum við stefnumótunarvinnu til að fylgja eftir frekari þróun og eflingu reksturins á komandi mánuðum.

Ferro Zink er einn af stærri efnissölum landsins í stáli og tengdum vörum en innan fyrirtækisins er rekin öflug framleiðslu og húðunardeild sem og sérhæfður verslunarrekstur.

Félagið er bæði með starfsemi á Akureyri og Hafnarfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK