Átta svítur á 800 fermetrum

Tower Suites Reykjavík
Tower Suites Reykjavík Tölvuteikning/Tark arkitektar

Fjárfestar undirbúa opnun lúxushótels á 20. og efstu hæðinni í turninum á Höfðatorgi í Reykjavík. Það mun heita Tower Suites Reykjavík og er stefnt að opnun í byrjun júní.

Sami hópur er að baki verkefninu og rekur Keiluhöllina. Hann er samsettur af Múlakaffisfjölskyldunni, með Jóhannes Stefánsson, eiganda Múlakaffis, í broddi fylkingar, og af Jóhannesi Ásbjörnssyni og Sigmari Vilhjálmssyni, stofnendum Hamborgarafabrikkunnar, og Snorra Marteinssyni, starfandi framkvæmdastjóra fabrikkunnar.

Setustofa Tower Suites Reykjavík
Setustofa Tower Suites Reykjavík Tölvuteikning/Tark arkitektar

Tuttugasta og efsta hæðin er rúmlega 800 fermetrar. Þar er verið að innrétta átta svítur, fjórar hornsvítur og fjórar minni á milli þeirra. Svíturnar eru 44-65 fermetrar.

Á miðri hæðinni er lyftugangur og fyrir framan hann verður setustofa þar sem boðið verður upp á morgunverð, áfenga drykki og léttar veitingar. Teikning af setustofunni er sýnd hér á síðunni. Móttaka verður á hæðinni.

Tower Suites Reykjavík
Tower Suites Reykjavík Tölvuteikning/Tark arkitektar

Hefur hvergi séð svona útsýni

Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, segir þetta einstakt húsnæði fyrir lúxushótel í Reykjavík.

„Þetta er einstakt að því leyti að þetta er síðasta húsið sem verður byggt svona hátt. Það er enda komið bann á fleiri háhýsi í Reykjavík.

Ég er búinn að fara víða um heim, hef ferðast víða og gist á hótelum. Ég hef hvergi komið á hótel þar sem hægt er að vera með heila svona hæð með 360 gráðu útsýni. Öll herbergin nema eitt munu hafa frístandandi baðkar. Frá hverju baðherbergi verður útsýni yfir borgina, eða yfir fjöllin. Það er líka einstakt. Við erum að ræða um fimm stjörnu gistingu,“ segir Jóhannes.

Jóhannes Stefánsson og nafni hans Ásbjörnsson eru meðal þeirra sem …
Jóhannes Stefánsson og nafni hans Ásbjörnsson eru meðal þeirra sem koma að lúxushótelinu mbl.is/Árni Sæberg

Hann segir hótelið verða í sama gæðaflokki og gistinguna sem hann rekur í Úthlíð í Biskupstungum. „Við erum að stíla á lúxus. Þetta er sami markhópurinn.“

Spurður hvernig hann ætli að sækja viðskiptavini segir Jóhannes að ferðaskrifstofur og kúnnarnir sjálfir muni getað pantað gistingu. Hótelið verði auðfundið á netinu.

Nafni hans, Jóhannes Ásbjörnsson, segir þá félaga hafa leitað til Ásgeirs Ásgeirssonar hjá Tark arkitektum um hönnun hótelsins.

Framkvæmdir eru í fullum gangi á Tower Suites Reykjavík
Framkvæmdir eru í fullum gangi á Tower Suites Reykjavík mbl.is/Árni Sæberg

Útsýnið er sölupunktur

Jóhannes segir boltann hafa farið að rúlla snemma í haust. Verkefnið eigi sér því ekki langan aðdraganda.

Hann segir starfsmenn hótelsins munu kynna það fyrir gestum sem fyrir augu ber frá 20. hæðinni. Hvert herbergi muni heita eftir fjalli á fjallahringnum. Meðal þeirra verði Vfilfell, Akrafjall, Hengill, Keilir, Esjan og Snæfellsjökull. Hægt verði að tengja herbergin með því að opna á milli þeirra. Þannig geti gestir leigt fleiri en eitt herbergi og jafnvel alla hæðina ef svo ber undir.

Hann segir aðspurður að svíturnar verði verðlagðar á 150-250 þúsund krónur nóttin, eftir stærð.

Hvert herbergi mun heita eftir fjalli á fjallahringnum. Meðal þeirra …
Hvert herbergi mun heita eftir fjalli á fjallahringnum. Meðal þeirra verði Vfilfell, Akrafjall, Hengill, Keilir, Esjan og Snæfellsjökull. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir starfsmenn verða með fasta viðveru á hótelinu allan sólarhringinn. Annar sem starfsmaður í móttöku en hinn sem concierge, eða hótelþjónn, fyrir gesti. Tekið er á móti gestum í bílakjallaranum.

Lúxushótel 20. hæð

Fjölskyldan á kafi í ferðamennsku

Teikningar lúxushótelsins
Teikningar lúxushótelsins mbl.is/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK