Breytingar leiða ekki til verðfalls

Inkallanir verða hafnar í mars.
Inkallanir verða hafnar í mars.

Þessa dagana er Hekla í samvinnu við við Volkswagen AG að undirbúa aðgerðir til leiðréttingar á útblástursinnihaldi þeirra bíla sem falla undir eiga undir svikabúnaðarmál fyrirtækisins. Innkallanir verða hafnar í mars.

Frávikin frá stöðlum um útblástursmengun reyndust vera tvenns konar. Annars vegar frábrigði frá staðli um útblástur nituroxíða og hins vegar frábrigði í skráningu koldíoxíðs í útblæstri.

Frávikin sem snúa að hinu fyrrnefnda eru vegna hugbúnaðar í vélstjórnbúnaði sem virkaði búnað vélarinnar til minnkunar á útblástursmengun þegar prófun fór fram á prófunarbekk, en minnkaði virknina í akstri og leyfði þannig meiri útblástur.

Lagfæringar er snúa að þessu samanstanda að hugbúnaðaruppfærslu allra véla og ísetningu loftflæðisbeinis í einni gerð vélanna, með 1,6 lítra rúmtak. Eftir þessar aðgerðir verður útblástursinnihaldið innan þeirra marka sem miðað hefur verið við í Evrópulöndum.

Hekla vinnur með Neytendastofu og Samgöngustofu varðandi framkvæmd innköllunar umræddra bíla.

Verkefninu verður skipt upp í tímabil eftir vélargerðum og er framgangi þess stjórnað af Volkswagen AG.

Ekki breyting á eldsneytisnotkun

Byrjað verður í marsmánuði 2016 á bílum með vélum sem eru með tveggja lítra rúmtak. Næsti verkhluti sem snýr að vélum með 1,2 lítra rúmtak hefst í júnímánuði og sá síðasti hefst í byrjun október og snýr þá að vélum með 1,6 lítra rúmtak.

Uppfærsluverkefnið verður í vinnslu fram eftir árinu og eins lengi og þörf er á til að klára verkefnið.

Ekki verður um neina breytingu á eldsneytisnotkun, CO2 innihaldi útblásturs, né á afköstum vélanna að því er segir í tilkynningu.

Eftir leiðréttinguna verður þá engin breyting á bílunum sem leitt gæti til verðfalls.

4 en ekki 432

Síðarnefndu tilvikin, þ.e. varðandi frábrigði í skráningu koldíoxíðs í útblæstri, hafa verið rannsökuð niður í kjölinn að því er segir í tilkynningu sem Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, skrifar undir.

Þá segir að eftir ítarlegar rannsóknir sé komið í ljós að fjórir bílar á Íslandi falli undir afbrigðið en upphaflega var talið að þeir væru 432.

Enn hefur ekki verið gefið út með hvaða hætti verður brugðist við en líklegt er talið skráning þeirra verði leiðrétt og verði sú leiðrétting völd að breytingu á skattflokki verður eigendum haldið skaðlausum. Ríkisskattstjóri og Tollstóri hafa verið upplýstir um málið og verður lausn unnin í fullu samráði við embættin.

Hekla vinnur með Neytendastofu og Samgöngustofu.
Hekla vinnur með Neytendastofu og Samgöngustofu.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK