Vilja lækkun til lengri tíma

Almar Guðmundsson, framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins.
Almar Guðmundsson, framkvæmdarstjóri Samtaka Iðnaðarins. mbl.is/Styrmir Kári

Samtök iðnaðarins fagna því að tryggingagjald lækki um 0,5 prósentustig frá 1. júlí 2016 samkvæmt frumvarpi til laga um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld. Lækkun gjaldsins er brýnt hagsmunamál iðnaðarins enda leggst tryggingargjaldið sérstaklega þungt á fyrirtæki með hátt launahlutfall og mikinn innlendan virðisauka, segir í tilkynningu.

Í skýringum með frumvarpinu kemur fram að stjórnvöld „hyggist beita sér fyrir frekari lækkun tryggingagjalds á komandi árum“.

Með krefjandi kjarasamninga

Í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins segir að ekkert sé því til fyrirstöðu að sambærileg lækkun verði einnig lögfest fyrir árin 2017 og 2018 líkt og samkomulag stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins frá janúar síðastliðnum gerir ráð fyrir.

Atvinnulífið hafi gert krefjandi kjarasamninga þrjú ár fram í tímann og fyrir liggi að framlag atvinnurekenda í lífeyrissjóði muni hækka samkvæmt þeim. Það að lögfesta ekki umsamda lækkun á tryggingagjaldi fyrir næstu ár auki á óvissu og dragi úr fyrirsjáanleika. 

„Að mati samtakanna er tryggingagjaldið þegar of hátt miðað við þau útgjöld sem gjaldið á að standa undir. Því er mikilvægt að gjaldinu verði komið í fyrra horf áður en samningstími rennur út. Önnur ákvæði frumvarpsins miða að því að einfalda skattakerfið og er það í fullu í samræmi við stefnu og áherslur Samtaka iðnaðarins,“ segir í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK