Kauphöllin rýrnaði í apríl

Viðskipti með hlutabréf jukust um 20% milli mánaða og námu í heildina 44,4 milljörðum króna í apríl. Það jafngildir 2,2 milljörðum króna á dag. Hækkunin er enn meiri milli ára og nemur 62%. 

Langmest voru viðskipti með bréf Icelandair Group, eða 12,3 milljarða króna velta. Næstmesta veltan var með bréf Marel, alls 7,1 milljarður króna, þá með bréf Reita fasteignafélags, eða 3,8 milljarða króna, þá N1, eða 3,1 milljarð króna og fimmta mesta veltan var með bréf Eikar fasteignafélags, eða alls þriggja milljarða króna velta.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% á milli mánaða og stendur nú í 1.872 stigum.

Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, þá Arion banki og síðan Kvika.

Í lok apríl voru hlutabréf 19 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Heildarmarkaðsvirði þeirra lækkaði milli mánaða og nam 1.043 milljörðum króna í apríl samanborið við 1.048 milljarða króna í mars.

Minni skuldabréfaviðskipti

Heildarviðskipti með skuldabréf námu 107 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 5,4 milljarða veltu á dag. Þetta er 14% lækkun frá fyrri mánuði og 9% hækkun frá fyrra ári.

Alls námu viðskipti með ríkisbréf 90,7 milljörðum, viðskipti með bankabréf námu 7,8 milljörðum og viðskipti með íbúðabréf námu 5,2 milljörðum.

Mest voru viðskipti með RIKB 20 0205, 17,5 milljarðar, RIKB 22 1026, 16,3 milljarðar, RIKB 25 0612, 15,9 milljarðar, RIKB 19 0226, 12,0 milljarðar og RIKB 31 0124, 10,6 milljarðar.

Á skuldabréfamarkaði var Kvika banki með mestu hlutdeildina, þá Arion banki og síðan Landsbankinn.

Aðalvísitala skuldabréfa hækkaði um 0,2% í apríl og stendur í 1.185 stigum. Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar hækkaði um 0,2% og sú verðtryggða hækkaði einnig um 0,2%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK